Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu af pöntunum yfir 6.000 kr.

Þetta byrjaði í eldhúsinu heima
SAGAN OKKAR

Þetta byrjaði í eldhúsinu heima

Þetta byrjaði allt þegar Úlfur minn byrjaði að borða og ég uppgötvaði hvað það getur skipt miklu máli að eiga hollan, næringarríkan mat tilbúinn í frystinum.

— Þóra Ásgeirsdóttir, stofnandi

Þar sem allt byrjaði
Fyrsti kaflinn

Þar sem allt byrjaði

Þegar sonur minn, Úlfur Orri, var nokkurra mánaða gamall áttaði ég mig á því hversu yfirþyrmandi það gat verið að útbúa næringarríkar máltíðir fyrir lítið barn. Maðurinn minn tók þá upp á því að elda stóra skammta af hollum og næringarríkum máltíðum, skipta þeim niður í litla skammta og fylla frystinn.

Þetta skipti sköpum.

Ég gat varið tímanum með Úlfi, leikið við hann og notið samverunnar – og hitað síðan upp heita, næringarríka máltíð á örfáum mínútum þegar hann varð svangur.

Stundum þurfa góðar hugmyndir að bíða
Frá hugmynd að vöru

Stundum þurfa góðar hugmyndir að bíða

Eitt kvöld sátum við fjölskyldan við eldhúsborðið og ég sagði við manninn minn: „Það ættu allir foreldrar að geta átt svona hollan og næringarríkan mat tilbúinn í frystinum." Þar kviknaði hugmyndin að Úlfatíma.

Eftir hlé vegna frekari barneigna og heimsfaraldurs tók ég hugmyndina aftur upp. Síðla árs 2024 kynnti ég hana fyrir Krónunni og viðbrögðin voru frábær.

„Það ættu allir foreldrar að geta átt svona hollan og næringarríkan mat tilbúinn í frystinum."

augnablikið sem hugmyndin kviknaði

Og nú heldur sagan áfram…

Byrjunin

Eldhúsið heima

Maðurinn minn eldaði stóra skammta og fyllti frystinn — svo ég fengi meiri tíma með Úlfi.

Hugmyndin

„Allir foreldrar ættu…"

Eitt kvöld við eldhúsborðið kviknaði hugmyndin að Úlfatíma.

2024

Krónan segir já

Ég kynnti hugmyndina fyrir Krónunni og skrifaði undir samning um fyrstu þrjá réttina.

Haust 2025

15 verslanir

Fyrstu þrír réttirnir okkar fóru í frystivörudeildir 15 verslana Krónunnar — og ferðin hélt áfram.

Vor 2026

Hagkaup

7 verslanir Hagkaupa bætast í hópinn

Þóra og krakkarnir á kynningu í Krónunni, haust 2025.Þóra og krakkarnir á kynningu í Krónunni, haust 2025.

Þóra og krakkarnir á kynningu í Krónunni, haust 2025.

Sagan heldur áfram — með þér

Hún byrjaði hjá mér og minni fjölskyldu – en í dag verður hún hluti af sögu fjölskyldna um allt land.

Í hvert sinn sem foreldri nær að setja holla og næringarríka máltíð á borðið á örfáum mínútum og fær um leið meiri tíma með barninu sínu, verður Úlfatími nákvæmlega það sem honum var ætlað að vera.

Takk fyrir að vera hluti af Úlfatíma 💛
— Þóra
— Þóra