Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu af pöntunum yfir 6.000 kr.

Persónuverndarstefna

Hjá Úlfatíma leggjum við mikla áherslu á að fara vel með persónuupplýsingar þínar. Hér útskýrum við hvaða upplýsingar við söfnum, hvernig við notum þær og hvaða réttindi þú hefur.


Ábyrgðaraðili

Úlfatími ehf.
Kt. 650923-2780
Espilundur 13, 210 Garðabær

 ulfatimi@ulfatimi.is

 697 7767


Hvaða upplýsingar söfnum við?

Þegar þú verslar hjá okkur eða skráir þig á póstlistann okkar kunnum við að safna eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafni
  • Heimilisfangi
  • Netfangi
  • Símanúmeri
  • Pöntunarsögu

Greiðsluupplýsingar eru unnar af greiðsluveitunni Teya. Úlfatími hefur ekki aðgang að né geymir kortaupplýsingar.


Hvernig notum við upplýsingarnar?

Við notum upplýsingarnar þínar til að:

  • afgreiða pantanir og afhenda vörur,
  • hafa samband vegna pantana,
  • senda kvittanir og staðfestingar,
  • uppfylla lagalegar skyldur, svo sem samkvæmt bókhaldslögum,
  • senda fréttir og tilboð ef þú hefur veitt samþykki fyrir því.

Hvar eru upplýsingarnar geymdar?

Pöntunargögn eru geymd hjá Shopify Inc. og greiðsluupplýsingar hjá Teya. Báðir þjónustuaðilar uppfylla kröfur almennu persónuverndarreglugerðarinnar (GDPR).


Miðlum við upplýsingum?

Við miðlum aðeins upplýsingum þegar það er nauðsynlegt til að veita þjónustu okkar eða þegar lög krefjast þess.

Það getur meðal annars átt við:

  • greiðsluveituna Teya,
  • sendingaraðila,
  • endurskoðendur eða opinber yfirvöld þegar skylt er samkvæmt lögum.

Við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar.


Hversu lengi geymum við upplýsingarnar?

Pöntunargögn og reikninga geymum við í 7 ár samkvæmt íslenskum bókhaldslögum.

Ef þú hefur skráð þig á póstlistann okkar verður netfangið þitt fjarlægt þegar þú afskráir þig.


Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum og GDPR átt þú meðal annars rétt á að:

  • fá upplýsingar um gögn sem við geymum um þig,
  • fá þær leiðréttar,
  • óska eftir eyðingu þeirra þegar það á við,
  • takmarka vinnslu,
  • flytja gögn til annars vinnsluaðila,
  • mótmæla vinnslu,
  • leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd.

Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum og greina notkun hans.

Þú getur breytt stillingum eða eytt vafrakökum hvenær sem er í vafranum þínum.


Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar um persónuverndarstefnuna eða hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar er þér alltaf velkomið að hafa samband.

 ulfatimi@ulfatimi.is

 697 7767


Breytingar á persónuverndarstefnu

Við kunnum að uppfæra þessa persónuverndarstefnu þegar þörf krefur. Á þessari síðu er ávallt að finna nýjustu útgáfu hennar.

 

Síðast uppfært: maí 2026