Sendingarskilmálar
Við sendum frosnar máltíðir beint heim að dyrum á höfuðborgarsvæðinu. Markmið okkar er að gera matartímann eins einfaldan og mögulegt er – allt frá pöntun til afhendingar.
Þjónustusvæði
Við sendum á eftirfarandi póstnúmer:
- Reykjavík: 101–116
- Seltjarnarnes: 170
- Kópavogur: 200–203
- Garðabær: 210–212
- Hafnarfjörður: 220–221
- Mosfellsbær: 270
Sendingardagar
Við sendum pantanir:
Þriðjudaga og fimmtudaga
Milli kl. 16:00 og 21:00
Pantanafrestur
Til að tryggja að pöntunin þín fari með næstu sendingu þarf að ganga frá henni fyrir kl. 12:00 daginn áður.
- Þriðjudagssending: Panta fyrir kl. 12:00 á mánudegi.
- Fimmtudagssending: Panta fyrir kl. 12:00 á miðvikudegi.
Sendingargjald
- 750 kr.
- Frí sending af pöntunum yfir 6.000 kr.
Mikilvægt um afhendingu
Allar vörur okkar eru afhentar frosnar. Við biðjum þig því að taka á móti sendingunni og setja vörurnar í frysti eins fljótt og auðið er til að tryggja gæði þeirra.
Ef þú ert ekki heima
Ef þú sérð fram á að geta ekki tekið á móti sendingunni skaltu hafa samband við okkur í síma 697 7767. Við gerum okkar besta til að finna lausn sem hentar.
Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar um sendingar eða pantanir er alltaf velkomið að hafa samband.
697 7767